Garðabraut 1, 300 Akranes, Skilalýsing

Framkvæmdaraðili

Byggingarfélagið Bestla ehf. er framkvæmdaraðili að Garðabraut 1 á Akranesi. Starfsmenn Bestlu búa að áratuga reynslu og þekkingu úr byggingariðnaði á Íslandi. Byggingarfélagið sérhæfir sig í byggingu íbúða ásamt þróunarverkefnum.

Almennt

Fjölbýlishúsið að Garðabraut er staðsett í glæsilegu íbúðarhverfi í uppbyggingu á Akranesi. Byggingin er 4 og 7 hæðir með 50 íbúðum af fjölbreyttum stærðum og gerðum. Tvö stiga- og lyftuhús er í byggingunni þar sem annað er 4 hæðir og hitt 7 hæðir að viðbættum kjallara. Íbúð 101 hefur sérinngang að framan á norðurhlið hússins við bílastæði á 1.hæð. Á 1. - 7. hæð eru íbúðir af fjölbreyttum stærðum og gerðum, tveggja, þriggja og fjögurra herbergja. Í kjallara hússins er sameiginleg bílageymsla með sér bílastæðum fyrir 50 bifreiðar merktum íbúðum sem þau tilheyra ásamt því að aðgengi er að sér geymslum frá bílakjallara. Að auki eru í kjallara sérgeymslur fyrir hluta íbúða ásamt vagna- og hjólageymslu og sameiginlegum tæknirýmum í hverju stigahúsi fyrir sig. Aðalinngangur er staðsettur á 1. hæð. Eingöngu er notast við fyrsta flokks efni bæði innan- sem og utandyra. Léttir innveggir íbúða eru með sérvöldu gipsefni fyrir hvert rými og veggir sérgeymslna eru hlaðnir. Áhersla var lögð á gott skipulag, fallegt útlit, gæði og góða nýtingu.

Frágangur utandyra

Burðarvirki hússins er úr forsteyptum einingum og eru útveggir einangraðir að utan með steyptri veðurkápu og málaðir.

  • Gluggar / svalahurðir:

    Gluggar, hurðir og svalahurðir eru timbur-ál, stöðluð framleiðsla Byko-Lat. Fög eru útopnandi með IPA 23151 stangarlæsingu, næturopnun. Svalahurðir eru með IPA 23285 svalaskrá, FIX 8307 handfangi og IPA 12197 galvanhúðuðum lömum. Útihurðir eru með ASSA 560 láshúsi (FIX 2025 3 punkta skrár þar sem við á) ASSA 5602 handföng, IPA 12197 galvanhúðuðum lömum. Sparkstál og hlíf á þröskuld. DAFA 25mm þröskuldar. Gler í gluggum og hurðum er einangrunargler með „heitum“ kanti á milli glerja. Litur glugga og hurða ytrabyrðis er RAL9010 inni og passar málning frá Slippfélaginu „Helmi“. Söluaðili glugga og hurða í ytra byrði er Byko.

  • Svalir:

    Svalagólf eru úr forsteyptum einingum með hálkuvörn, hálkuvörn er mótaáferð, steypan er lögð á dúk og myndast þá fyrrgreind áferð. Vatnshalli er að niðurföllum. Svalir íbúða 506 ásamt íbúðum 6. Og 7.hæðar eru einangraðar og hellulagðar. Svalahandrið eru úr álgler með ál í grænum lit RAL-6033 og glæru öryggisgleri. Söluaðili, framleiðsla og uppsetning Álkerfi ehf

  • Raflagnir:

    Lýsing er fullfrágengin á svölum ásamt einum rafmagnstengli. Öll önnur utanhússlýsing er full frágengin samkvæmt teikningum raflagnahönnuðar. Útiljós á svölum íbúða er Marta90, GU10. Söluaðili útiljósa er Reykjafell. Framkvæmd: Rafglóð Ísland ehf.

  • Þak:

    Þök byggingarinnar eru svokölluð við snúin. Ofan á steypta þakplötu eru brædd tvö lög af asfaltpappa og ofan á er lagður drendúkur undir 220mm rakaþolna plasteinangrun með vatnshalla a.m.k. 25 prómill. Ofan á einangrun er lagður síudúkur undir rúnaða sjávarmöl til förgunar.

    Framkvæmd: Þaktak ehf

  • Lóð:

    Stéttar fyrir framan bygginguna og verandir á sérafnotaflötum íbúða eru hellulagðar eða steyptar skv. teikningum arkitekta. Hitalögn er í helstu gönguleiðum og bílastæðum fyrir hreyfihamlaða. Grasflatir eru þökulagðar. Gróður er í gróðurbeðum skv. teikningum landslagsarkitekts. Bílastæði eru norðan megin við húsið og eru stæði aðskilin með hvítum línum. Sérafnotareitir fylgja íbúðum á fyrstu hæð sem verða timburpallur. Frágangur lóðar er að öðru leiti samkvæmt teikningum landslagsarkitekts (Landslag ehf).

    Framkvæmd: Garðsauki ehf

  • Handrið utan við hús:

    Svalahandrið ásamt eru úr áli og öryggisgleri. Litur á svalahandriðum er RAL6033 og gler Með fyrirvara um breytingar og villur er glært. Handlistar í tröppum að sameign kjallara og bílakjallara til norður og austur eru úr stáli – heitgalvaniserað. Framleiðslu og framkvæmdaraðili svalahandriða er Álkerfi ehf og framaleiðandi og framkvæmdaraðili við handlista er Vélsmiðja Konráðs.

  • Húsnúmer:

    Húsnúmer er uppsett á áberandi stað á útveggjum, á suður hliðum byggingarinnar er húsnúmer, með þessu næst sýnileiki fyrir þá sem nálgast húsið frá báðum áttum um Garðabraut. Húsnúmer er úr matt svörtu efni. Framleiðsla: Merking ehf

  • Rafhleðslustöðvar:

    Á lóð er gert ráð fyrir raflhleðslustaurum. Í bílakjallara hefur verið gert ráð fyrir hleðslustöðvum við bílastæði og því auðvelt að setja hana upp.

  • Djúpgámar:

    Djúpgámar á austur hlið lóðar við Garðabraut eru fimm talsins og eru þeir 5m3 að stærð skv. Fyrirskrift hönnuðar. Steyptur kjarni (gryfja) situr á púða og málmtunna (ílát) er komið fyrir í gryfju með þar til gerðum búnaði. Tunna á toppi gámsins er í grænum lit í takt við húsið, RAL6033. Aðgengi að djúpgámum er með lykli sem gengur að sameign hússins.

    Söluaðili djúpgáma er Snjallgámar ehf og niðursetning framkvæmd af Bestlu.

Frágangur innandyra

Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna en gólf eru þunn flotuð að undanskildum votrýmum (baðherbergi og þvottahús) sem eru flísalögð. Öllum íbúðum fylgja eftirfarandi tæki í eldhúsi frá Ormsson: Span- helluborð og bakarofn frá AEG og gufugleypir/ háfur frá Airforce/Elica.

  • Veggir:

    Veggir eru flestir úr forsteyptum einingum, spartlaðir og málaðir með Flutex 7 pro, litur „Bestla Hvítt“ – söluaðili málningar Flügger. Léttir innveggir eru úr sérvöldu gipsefni í hverja tegund rýmis, spartlaðir og málaðir með með Flutex 7 pro, litur „Bestla Hvítt“. Fyrirkomulag innveggja er í samræmi við samþykkta aðaluppdrætti af íbúðarhúsnæðinu. Hluti baðherbergisveggja eru flísalagðir og nær flísalögnin upp í loft.

  • Loft:

    Lofthæð íbúða er frá 2630-3040mm. Loft eru slípuð, spörtluð og máluð með Flutex 2s litur „Bestla Hvítt“ – söluaðili málningar Flügger.

  • Hurðir:

    Innihurðir eru sérpantaðar með aukinni hæð þær eru sléttar yfirfelldar frá Ringo sprautaðar í Með fyrirvara um breytingar og villur hvítum lit RAL-9010, söluaðili er Birgisson ehf. Hurðarhúnar eru burstað ál/stál. Hurðir að sérgeymslum í kjallara eru sléttar yfirfelldar frá Ringo sprautaðar í hvítum lit RAL-9010, söluaðili er Birgisson ehf. Inngangshurðir íbúða eru sléttar yfirfelldar EI30CS eldvarnahurðar með hurðarpumpu, söluaðili er Birgisson ehf. Eldvarnahurðir í sameign kjallara eru hvítar stálhurðir ýmist (E30 eða E60) með rafmagnsopnun frá járn&gler í helstu gönguleiðum en hurðarpumpu í tækjarými, tegund eldvarnahurða er skv. Brunahönnun. Söluaðili eldvarnahurða er Glófaxi ehf. Sjálfvirkar inngangshurðir og foranddyrishurð á 1.hæð í aðalinngangi eru ál-gler framleiddar í sérlit RAL-6033, uppsettar og þjónustaðar af Fagval ehf.

  • Eldhús: Innréttingar

    Innréttingar í eldhúsi eru frá innréttinga- framleiðandanum GKS og eru almennt í ljósum lit ("Light Gray" U708). Yfirborð hurða- og skúffuforstykkja eru úr slitsterku harðplasti sem er þægilegt í umgengni og viðhaldi. Vegghengdir efri skápar eru með LED-lýsingu undir skápum. Borðplötur eru almennt úr 38 mm þykkum HPL (high pressure laminate) í lit "Beige Textile” frá GKS.

  • Eldhústæki:

    Eldhús skilast með vönduðum tækjum frá AEG: span-helluborði og bakarofni með innbyggðum hitamæli. Ýmist er gufugleypir innbyggður í efri skáp af gerðinni Airforce/Elica sem lofthengdur eyjuháfur af gerðinni Airforce eða veggháfur. Íbúðum er skilað til kaupanda án kæli-/ frystiskáps og uppþvottavélar en gert er ráð fyrir að þessi tæki séu innbyggð og fylgja þess vegna hurðaforstykki í stíl við innréttingar með til uppsetningar. Eldhústæki frá Grohe eru hitastýrð og einnar handar. Eldhúsvaskur er af vandaðri gerð úr stáli, límdur ofan á HPL-plastlagðar borðplötur. Söluaðili vaska og blöndunartækja er Byko ehf.

  • Baðherbergi:

    Baðherbergisgólf er flísalagt með Pro Fluid Grey flísum í stærðinni 60x60 cm frá Álfaborg ehf. Hluti baðherbergisveggja er flísalagður upp í loft með flísum sömu gerðar og eru á gólfum. Baðinnrétting er í ljósum lit ("Light Gray" U708) með mjúklokun á skúffum. Borðplata er úr 38 mm þykkum HPL (high pressure laminate) í ljósum lit með dökkum kanti ásamt ofan á límdum hvítum vaski, (Cersanit). Hreinlætistæki eru frá Grohe Bau, hitastýrð einnar handar blöndunartæki. Blöndunartæki í sturtu eru frá Grohe Bau 210, hitastýrð einnar handar blöndunartæki króm að lit. Gólf sturtuklefa er með vatnshalla, flísalagt með ílangri Unidren niðurfallsrist frá Tengi, sturtugler eru ýmist tvískipt með hurð eða föst 90cm x 210cm frá Álfaborg. Salernisskál er vegghengd Grohe með innbyggðum vatnskassa og þrýstihnappi, söluaðili er Byko. Baðherbergis veggir og loft er málað með Akrýl 7 í litnum „Bestla hvítt“ – söluaðili málningar Slippfélagið.

  • Svefnherbergi:

    Fataskápar eru í svefnherbergjum, í ljósum lit ("Light Gray" U708) laminate og vönduðum höldum. Skápar eru framleiddir og uppsettir af GKS.

  • Forstofa:

    Fataskápar eru í forstofu skv. teikningu, , í ljósum lit ("Light Gray" U708) laminate og Með fyrirvara um breytingar og villur vönduðum höldum. Skápar eru framleiddir og uppsettir af GKS.

  • Þvottahús:

    Sérstök þvottaaðstaða í sér rými er í sumum íbúðum en í öðrum íbúðum er gert ráð fyrir þvottaaðstöðu inni á baðherbergjum. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Gert er ráð fyrir að þurrkari sé barkalaus með rakaþétti. Gólf er flísalagt með Pro Fluid Grey flísum í stærðinni 60x60 cm frá Álfaborg ehf. Flísalögn framkvæmd af J.K.Múr

  • Tegundalisti innviða:

    Flísar: Pro Fluid Grey, söluaðili Álfaborg

    Málning: Flügger / Slippfélagið

    Innihurðar: Ringo Lit, söluaðili Birgisson ehf

    Innréttingar og fataskápar: GKS innréttingar

    Blöndunartæki: Grohe, söluaðili Byko ehf

    Eldhústæki: AEG og Airforce/Elica, söluaðili Ormsson

  • Sérgeymslur:

    Léttir veggir í geymslum eru hlaðnir og málaðir í ljósum lit, Flutex 7 pro litur „Bestla hvítt“ - söluaðili Flügger. Vélræn loftræsting er í geymslum og geymslugólf eru máluð með PU floor paint í litnum Dúngrátt – söluaðili málningar Flügger.

  • Sameign:

    Anddyri eru flísalögð en stigagangar teppalagðir, teppin eru frá Álfaborg í gerðinni Cobalt SDN í litnum 64050. Póstkassar frá Merkingu ehf í hvítum lit verða uppsettir í anddyri. Fólksflutningalyfta er í húsinu með teppi á gólfi eins og stigahúsi, hún er sjúkraflutningalyfta skv. byggingarreglugerð. Lyfta er vönduð af gerðinni MonoSpace 300 DX frá Kone. Gólf í tæknirýmum eru vélslípuð og máluð. Loft og veggir eru málaðir með Flutex 7 í litnum „Bestla hvítt“ – söluaðili Flügger. Handrið eru framleidd í gráum lit RAL-7016 og uppsett af Vélsmiðju Konráðs.

  • Sorp og sorpflokkun:

    Sorpflokkun íbúa er í þar til gerðum djúpgámum með lykilaðgengi sem staðsettir eru við norð-austur hlið byggingarinnar. Seljandi er Snjallgámar ehf

  • Bílageymsla:

    Samtals eru 50 sérmerkt bílastæði í bílageymslu. Bílageymsla er með reyklosun og vélrænni loftræstingu. Búið verður að leggja tengipunkta fyrir rafhleðslustöðvar í lofti bílageymslu. Hægt er að setja upp hleðslustöðvar með einföldum hætti. Gólf bílageymslu er vélslípað, með hvítum línum sem aðgreina stæðia. Bílskúrshurð er í lit RAL-6033 að utan og RAL-9016 frá Vögnum og þjónustu, uppsetning bílskúrshurðaþjónustan B.M.K. Bílageymsla er upphituð en með hitastigi undir 10°C (frostfrí). Þjónustuaðili og uppsetning grunnkerfis rafhleðslustöðva framkvæmt af Isorku ehf.

  • Raflagnir:

    Allt lagnaefni er af tegundinni Gira frá S.Guðjónssyni og er svart að lit. Skyldulýsing er Með fyrirvara um breytingar og villur uppsett, þ.e. í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi í sameign og svalagöngum. (skylduljós samkvæmt byggingarreglugerð).

    Ljós innan íbúðar:

    Loftljós: Gamma Mini, Reykjafell heildsala Loftljós á baðherbergi: Gamma Mini, Reykjafell heildsala Veggljós baðherbergis: Áfast á innréttingum, GKS

    Ljós á stigagöngum innandyra:

    Loftljós: Gamma, Reykjafell heildsala Veggljós: Gamma, Reykjafell heildsala Neyðarlýsing loft: Innbyggt í ljósum Neyðarlýsing veggir: Innbyggt í ljósum

    Útiljós svölum íbúða og svalaganga:

    Svalir íbúða: Marta90, GU10, Reykjafell heildsala

    Ljós í bílageymslu:

    Loft: Reykjafell Neyðarlýsing í loftum: Reykjafell

    Ljós í geymslum og göngum:

    Geymslur: Gamma2, Reykjafell heildsala Gangar: Gamma2, Reykjafell heildsala Neyðarlýsing ganga kjallara: Innbyggt í ljósum

    Tenglar og rofar:

    Tenglar og rofar íbúða: GIRA S55, hvítt glans, S.Guðjónsson Tenglar og rofar geymslur: GIRA S55, hvítt glans, S.Guðjónsson Tenglar og rofar sameignarhluti: GIRA S55, hvítt glans, S.Guðjónsson

    Dyrasími:

    Sfera mynddyrasími, S.Guðjónsson heildsala

    Rafmagnstöflur:

    Tafla innan íbúðar: Reykjafell, Eaton varbúnaður Aðalrafmagnstöflur: Rafport, ABB varbúnaður

    Uppsetning og þjónustu aðili fyrir raflagnir:

    Rafglóð ehf, sími 892-9654
  • Hita- og loftræstikerfi:

    Íbúðir og sameign eru hitaðar með ofnakerfi skv. Teikningum. Hver íbúð er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Loft er sogað úr eldhúsi og baðherberum og fersku lofti dælt inn í önnur rými. Kerfið endurvinnur varma upp að 85%, nýtir varma úr útsogslofti og hitar ferskt loft sem dælt er inn. Allt loft sem fer í gegnum kerfið er síað og er því minna af svifryki og frjókornum í íbúðunum en ella. Loftræstisamstæður eru staðsettar á svölum.

    Uppsetning og þjónustu aðili fyrir pípulagnir:

    Ak Pípulagnir ehf, sími 865-2022

    Uppsetning og þjónustu aðili fyrir loftræstingu:

    Ísloft ehf. Sími 587-6666

  • Brunavarnir:

    Slökkvitæki er við inngang hverrar íbúðar og á völdum merktum svæðum í sameign. Optískir sérstæðir reykskynjarar eru í opnum rýmum íbúða. Samtengt Siemens brunakerfi er í sameign og brunaslanga í bílageymslu ásamt sprinkler kerfi. Sölu og þjónustuaðili brunavarna er Öryggismiðstöðin

  • Póstkassar:

    Póstkassar eru hvítir frá Merking ehf í aðalinngangsrými hússins merktir hverri íbúð ásamt sér póstkassa fyrir húsfélag.

Til áréttingar og fyrirvarar

Vísað er til hönnunargagna (m.a. aðaluppdrátta) varðandi nákvæmari útfærslu á atriðum sem ekki koma fram í skilalýsingunni.

Auglýsingaefni er eingöngu til hliðsjónar, komi upp misræmi eru samþykktar teikningar hönnuða gildandi. Íbúðum er skilað máluðum, án gólfefna og án lausra húsgagna.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, útlits- og tæknilegar breytingar meðan á byggingarframkvæmdum stendur. Einnig áskilur seljandi sér rétt til að láta breyta teikningum á byggingartímanum í samráði við arkitekta og hönnuði að fengnu samþykki byggingaryfirvalda sé þess þörf vegna tæknilegra útfærslna.

Misræmi getur verið milli söluteikningar, teikningar arkitekts og innréttingateikninga frá framleiðanda. Gera má ráð fyrir minni háttar frávikum frá teikningum framleiðanda vegna endanlegra útfærslna á verkstað.

Kaupandi gæti þurft að hreinsa sigti á blöndunartækjum og niðurföllum nokkrum sinnum og fylgjast með niðurföllum í þvottahúsi, baðherbergjum, bílageymslu og úti á svölum.

Í steyptum nýbyggingum er mikill raki sem mun hverfa á einu til tveimur árum og er það algjörlega háð útloftun í íbúðinni. Nauðsynlegt er að útloftun í íbúðum sé góð og mikilvægt er að fylgjast með vatnsmyndun (dögg) innan á gluggagleri. Til að forða að vatn safnist saman neðst á glerinu er mikilvægt að hafa glugga lítillega opna til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna í veðri. Ef þetta er ekki gert er hætta á að vatnið valdi skemmdum á gluggum, gólfefnum og málningu.

Seljandi ber ekki ábyrgð á eðlilegri og venjulegri sprungumyndun í múr, steypu, gifsi og timbri. Gera má ráð fyrir því að kaupandi þurfi að endurmála íbúð eftir nokkurn tíma þegar byggingin, þ.e. það byggingarefni sem í henni er, hefur náð stöðugu ástandi.

Svalagólf er nauðsynlegt að sílanbera á u.þ.b. 2 ára fresti.

Nauðsynlegt er að smyrja lamir á hurðum og hurðarpumpum, þar sem við á, og kann að vera þörf að herða upp á húnum og læsingum með tímanum.

Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hlutum hennar að ósk kaupanda geta haft áhrif á afhendingartíma og leitt til kostnaðarauka en aldrei til lækkunar. Með fyrirvara um breytingar og villur

Íbúðir afhendast yfirborðshreinar. Forsvarsaðili seljanda mun ásamt íbúðarkaupanda yfirfara íbúð við afhendingu. Ef gallar eða vanefndir, skv. 3.kafla laga um fasteignakaup, koma í ljós við afhendingu skal seljandi lagfæra galla eins fljótt og auðið er.

Mælst er til þess að huga að árlegu eftirliti um eldvarnir heimila og yfirferð slökkvitækja í sameign.

Sjálfstæð loftræsting er í hverri íbúð og huga þarf að árlegu eftirliti með síum og hreinsun kerfisins.

Almennt þarf að huga að viðhaldi á öllum slit flötum hússins svo sem inngangshurðir, gólfteppi, lyftur, hurðarpumpur og drif. Ofangreint er ekki tæmandi yfir þau atriði sem þarfnast viðhalds með komandi árum.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar endanlegt brunabótamat er komið á eignina.

Uppfært 8. Maí 2026