Gardabraut
Vandaðar íbúðir miðsvæðis á Akranesi
Akranes stækkar
Garðabraut 1 er vandað fjölbýlishús á eftirsóknarverðum stað miðsvæðis á Akranesi þar sem nýbyggingar rísa hæfilega þétt og bæta og fegra umhverfi sitt með stílhreinni nútímabyggð. Byggðin mætir þörfum íbúa og skapar um leið vettvang fyrir líflegt samfélag þar sem verslun og þjónusta eru í göngufæri og sameiginlegur inngarður býður upp á samverustundir. Byggingin styrkir bæjarmynd svæðisins með formfögru og stílhreinu útliti og fallegum litum sem gleðja. Litaval er nýstárlegt og rímar um leið við þá liti sem fyrir eru í bænum og umhverfi hans. Aðallitur byggingarinnar er sígildur ljósgrár sem fer vel við alla aðra liti, ekki síst síbreytilega liti sjávarins sem umlykur bæinn. Djúp sægrænn litur nýtur sín vel á veglegum gluggum húshliða og umgjörðum svala með ljósgrænum opnanlegum gluggafögum sem framkalla gleðilegt yfirbragð.
Alúð hefur verið sett í hönnun íbúða og sérstök áhersla lögð á vel skipulögð, björt og vistleg rými með aukinni lofthæð, góðri hljóðvist og loftgæðum. Þannig fylgir hverri íbúð sjálfstæð loftræsieining með varmaendurvinnslu, sem tryggir íbúum bestu mögulegu hita- og loftgæði alla daga, hvernig sem viðrar. Stórir gluggar hleypa inn dagsbirtu og ramma inn stórfenglegt útsýni yfir nærumhverfið.

Fjölbreyttar íbúðir
Íbúðir byggingarinnar eru fjölbreyttar að stærð og skipulagi, tveggja til fjögurra herbergja, frá um 60 til 170 fermetrum að stærð. Allar eru þær með aukinni lofthæð. Efnis- og litaval innanhúss er látlaust en nútímalegt og þannig hugsað að ólíkur persónulegur stíll íbúa getur sem best notið sín. Innréttingar, hurðir, tæki og búnaður er vandlega valinn með nútíma þarfir, endingu og hagkvæmni að leiðarljósi.
Nálægð við verslun og þjónustu eykur gæði hins byggða umhverfis sem og lífsgæði íbúa. Flestum íbúðum fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri, fullniðurgrafinni bílgeymslum, ýmist eitt eða tvö stæði. Til viðbótar eru bílastæði á lóð. Heildar fjöldi bílastæða er tæplega eitt og hálft stæði á hverja íbúð. Hér ætti hver sem er að geta skapað sér gott heimili.
Hlutdeildarlán er í boði fyrir íbúðir sem HMS hefur samþykkt.Skoðaðu íbúðavalið og finndu þína draumaíbúð

Íbúðategundir
Garðabraut 1 býður upp á 15 tegundir íbúða af mismunandi gerð, stærð og herbergjafjölda. Sú minnsta er með einu svefnherbergi og um 60 fermetrar að stærð. Sú stærsta er 170 fermetrar að stærð, með þremur svefnherbergjum.
Íbúðir á jarðhæð eru með sérnotareit í tengingu við alrými. Íbúðir á 6. og 7. hæð eru með veglegum þaksvölum þar sem mögulegt er að vera með rafmagnspott.
Flestum íbúðum fylgir sérmerkt bílastæði í fullniðurgrafinni bílgeymslu þar sem gert hefur verið ráð fyrir rafhleðslustöðvum. Penthouse íbúðum og íbúðum xx02 fylgja tvö bílastæði í bílgeymslu.
Hægt er að smella á tegund til þess að sjá staðsetningu íbúðanna í byggingunni.
SKOÐA
Tegund A
Fjöldi : 5
Herbergi
2
Birt stærð
67.4 - 83.4m2
Svalir
6.8m2
Verð frá 57,9 mkr.
SKOÐA
Tegund B
Fjöldi : 5
Herbergi
3
Birt stærð
115.9 - 120.4m2
Svalir
9.4m2
Verð frá 97,9 mkr.
SKOÐA
Tegund C
Fjöldi : 5
Herbergi
2
Birt stærð
71.1 - 71.2m2
Svalir
6.8m2
Verð frá 57,9 mkr.
SKOÐA
Tegund D
Fjöldi : 5
Herbergi
3
Birt stærð
89.5 - 92.7m2
Svalir
6.8m2
Verð frá 74,9 mkr.
SKOÐA
Tegund E
Fjöldi : 5
Herbergi
2
Birt stærð
65.3 - 66m2
Svalir
6.8m2
Verð frá 55,9 mkr.
SKOÐA
Tegund F
Fjöldi : 5
Herbergi
3
Birt stærð
98.4 - 102.7m2
Svalir
9.4m2
Verð frá 77,9 mkr.
SKOÐA
Tegund G
Fjöldi : 4
Herbergi
3
Birt stærð
85 - 85.1m2
Svalir
6.8m2
Verð frá 69,9 mkr.
SKOÐA
Tegund H
Fjöldi : 4
Herbergi
2
Birt stærð
61.9 - 62.8m2
Svalir
6.8m2
Verð frá 53,9 mkr.
SKOÐA
Tegund I
Fjöldi : 4
Herbergi
3
Birt stærð
82 - 83.2m2
Svalir
6.8m2
Verð frá 67,9 mkr.
SKOÐA
Tegund J
Fjöldi : 4
Herbergi
3
Birt stærð
74.2 - 75.6m2
Svalir
6.8m2
Verð frá 61,9 mkr.
SKOÐA
Tegund K
Fjöldi : 1
Herbergi
3
Birt stærð
169.6 - 169.6m2
Svalir
97.6m2
Verð frá 149 mkr.
SKOÐA
Tegund L
Fjöldi : 1
Herbergi
3
Birt stærð
141.2 - 141.2m2
Svalir
135.7m2
Verð frá 139 mkr.
SKOÐA
Tegund M
Fjöldi : 1
Herbergi
3
Birt stærð
157.3 - 157.3m2
Svalir
34.6m2
Verð frá 149 mkr.
SKOÐA
Tegund N
Fjöldi : 1
Herbergi
2
Birt stærð
118.9 - 118.9m2
Svalir
34.3m2
Verð frá 119 mkr.
ELDHÚS
BAÐHERBERGI
ALRÝMI
Bílakjallarinn
Bílakjallarinn
Bílageymslan er fullniðurgrafinn. Í henni eru 50 sérmerkt bílastæði og 21 bílastæði ofan jarðar, þar af 4 bílastæði ætluð hreyfihömluðum. Hægt verður að koma fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla við hvert bílastæði í bílgeymslu. Gólfið er steypt og vélslípað með vatnshalla að niðurföllum. Veggir og loft eru sprautuð hvít. Bílgeymslan er upplýst með lýsingu frá Reykjafelli og loftræst með rafrænu loftræstikerfi. Í henni er vatnsúðakerfi tengt brunaviðvörunarkerfi hússins.
LÓÐ, LEIKVÖLLUR OG BÍLASTÆÐI
LÓÐ, LEIKVÖLLUR OG BÍLASTÆÐI
Lóð er hönnuð af landslagsarkitektum teiknistofunnar Landslags. Á lóð byggingarinnar er dvalarsvæði íbúa og auka bílastæði. Sameiginlegt svæði íbúa nær umhverfis húsið með grænum gróðurreitum, leiksvæði og hellulögðum gönguleiðum með snjóbræðslu sem tengjast göngustígum bæjarins. Við íbúðir á fyrstu hæð eru sérnotareitir afmarkaðir með timburpalli og handriðum. Á austurhlið lóðar eru djúpgámar undir heimilissorp staðsettir. Aðgengi að djúpgámum er með lykli sem gengur að sameign hússins.
Hönnun
Arkitektar og aðalhönnuðir Garðabrautar 1 eru Skala: arkitektar. Alúð hefur verið sett í hönnun íbúða og áhersla lögð á vel skipulögð, stílhrein og björt rými þar sem flæði á milli rýma er gott og hver fermetri nýttur af kostgæfni. Aukin lofthæð og veglegir gluggar sem hleypa náttúrulegri birtu inn bæta birtuskilyrði innan íbúða. Þá eru loft og veggir íbúða hvítmáluð í sérblönduðum hvítum lit og allar hurðir sprautulakkaðar hvítar. Hurðir innan íbúða, af gerðinni Ringo frá Birgisson, mæta aukinni lofthæð og eru því sérsmíðaðar. Inngangshurðir íbúða, sömuleiðis frá Birgisson, eru hvítar, yfirfelldar timburhurðir með eldvörn og hljóðdempun skv. byggingarreglugerð. Stílhreinir L-Form hurðarhúnar úr áli, gefa hurðunum tímalaust yfirbragð. Rafmagnstenglar og rofar eru hvítir, GIRA S55 frá S.Guðjónsson.
Útlit innréttinga, litir og áferð er sígilt og hlýlegt og hugsað sem góður grunnur fyrir fjölbreytilegan og persónulegan stíl íbúa. Vandlega valin “smáatriði” eins og höldur og borðplötur gefa nútímalegt yfirbragð. Innréttingar eru allar í björtum og einstaklega fallegum ljósgráum lit sem tónar vel við aðra heimsins liti. Hið rótgróna íslenska fyrirtæki, GKS, útvegar innréttingar og sér um uppsetningu þeirra. Í öllum svefnherbergjum eru vandaðir fataskápar frá samstarfsaðila GKS, austuríska fjölskyldufyrirtækinu EGGER, sem hefur sérhæft sig í framleiðslu úr timbri frá árinu 1961 og leggur ríka áherslu á sjálfbærni og nýtingu dýrmæts efniviðar. Skáphurðir eru með mjúkri, mattri áferð og veglegum svörtum höldum frá Nobilia.

Eldhúsinnréttingar eru stílhrein gæðasmíði frá þýska framleiðandanum Nobilia sem eins og EGGER leggur ríka áherslu á sjálfbærni í sinni framleiðslu. Innréttingin af gerðinni Laser 651 í lit sem Nobilia kallar 417 Satin Grey og er sá sami og litur fataskápanna þó framleiðandinn sé annar. Borðplötur eur 38 mm þykkar í ljósum Concrete Sand lit með yfirborðsáferð sem minnir á steypu. Brúnir eru með frágangi sem Nobilia kallar décor og hafðar í möttum svörtum lit sem gefur eldhúsinnréttingunni nýstárlegan karakter.Skúffur eru allar með nBOX skúffukerfi og nýstárlegum svörtum Nobilia 502 griphöldum, þeim sömu og fataskáparnir.
Auk veglegra glugga sem hleypa dagsbirtu inn hefur verið hugað að raflýsingu innanhúss. Loftljós eru af gerðinni Gamma Mini, frá Reykjafelli. Neyðarlýsing er innbyggð ljós og á svölum íbúða er lýsing Marta 90, GU10 frá Rafkaup.
Frontar
Ljósgrái liturinn sem valinn hefur verið á allar innréttingar er sambærilegur RAL 7047. Hjá Egger, sem framleiðir fronta fataskápa, heitir liturinn Light Grey og hjá Nobilia, sem framleiðir fronta eldhúss- og baðinnréttinga, kallast hann Satin Grey.
Umhverfi
Íbúar á fjölbreyttum aldri geta unað sér við afþreyingu sem hentar, í steinsnari frá húsi. Gangandi má nálgast fjölþætta þjónustu og verslun auk þess sem stutt er náttúruna. Sjór umlykur stóran hluta bæjarins með tilheyrandi lífi. Á Langasandi er hægt að njóta útsýnis og baða sig í sjónum og heitu lauginni Guðlaugu sem þar er. Hönnun miðar að því að íbúar njóti sólar innandyra og af fremsta megni utandyra.
Garðabraut
Skólar
Afþreying
Verslanir
Bensínstöðvar
Skyndibitar
Strætó
Útivistarsvæði
Annað